Ađalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

Innskráningar kubbur

Klukkan

Myndir

Bloggarar

Alice in Chains í ágúst !!! :)Sunna Ţrastardóttir


Hæ elskurnar mínar !!!! Til hammó með daginn þjóðhátíðardaginn í fyrradag. Vona að þið hafið öll notið hans í botn. Ég er semsagt þessa stundina að gera internshipið mitt í Rooms of Red Bull verkefninu. Frekar mikið easy going verkefni Það eina sem ég þarf að gera er að hanga hér allan daginn, skrá niður hvað er að gerast og svo í enda dagsins blogga um það. Við erum þrjú sem sjáum um það og ásamt mér eru það Hugo og Anya. Þannig að nú sit ég bara hér að hlusta á sama lagið aftur og aftur og aftur... og btw þá er þetta electronisk tónlist sem ég er mikið á móti. 


Annars er skólinn bara fínn eins og venjulega og ekki næst verkefna skil fyrr en í ágúst. Ég reyndar skipti um BA ritgerðar efni um daginn eða alltso hætti við að gera það sem éghafði áður ákveðið að fjalla um. Ég veit svona nokkurn veginn hvað mig langar að skrifa um en hef ekki náð að búa til fullnægjandi rannsóknarspurningu. Það sem mig langar að fjalla um er hvernig tónlist getur vakið upp ýmsar tilfinningar hjá fólki. Þeir sem þekkja mig vita að ég er mjög tilfinningarík þegar kemur að fallegri tónlist. Ég var jafnvel að hugsa um að blanda bíómyndum í þetta og hafði þá hugsað mér að fjalla aðallega um tónlistina hans Thomas Newman sem gerði m.a. tónlistina fyrir the Green Mile, Shawshank Redemtion, American Beauty og Road to Perdition. Í öllum þessum myndum eru atriði sem ég kalla gæsahúðaratriði og vil ég meina að tónlistin í þeim skipti miklu máli. En eins og áður sagði hef ég ekki náð ap koma með rannsóknarspurningu... en hún er að gerjast í kollinum á mér og verður tilbúin von bráðar. 


Í seinustu bloggfærslu sagði ég að blakið væri komi í sumarfrí en mér skátlaðist heldur betur, því ég er búin að vera að æfa með dames 2 seinustu þrjár vikur. Þannig var mál með vexti að vinkona mín úr gamla liðinu mínu var á djamminu og hitti þar þjálfara dames 2 og sagði honum að það væri stelpa í liðinu sínu sem væri til í að fara í hærra lið. Ég var ekki endilega að búast við að fara svona hátt eeeen... Hann semsagt sagðist vanta uppspilara og hún sagði að ég væri rosa góð.... HAHAHAH ! Um það má nú deila, en ég semsagt fór á æfingu með þeim og gvuð minn almáttugur. Bara eftir upphitun hélt ég myndi æla og falla í yfirlið. Ég er semsagt búin að vera á frekar léttum æfingum hingað til, og þið getið rétt svo ýmindað ykkur hvernig var að koma á alvöru æfingu. Það var ógeðslega erfitt, ógeðslega gaman og svo gat ég ekki labbað venjulega næstu viku. Þetta lið er rosalega gott og ég er klárlega ekki lengur best í liðinu...haha...trúlega bara lélegust. En þá leggur maður sig bara harðar fram :) Þannig að næsta tímabil verð ég að æfa með dames 2 og líka trúlega 3 eða 4. Þjálfarinn minn er frábær og er alltaf að benda mér á eitthvað og alltaf lærir maður eitthvað nýtt. Það er reyndar ótrúlega góður uppspilari íliðinu en hann vill helst alltaf hafa tvo á æfingum. 


En talandi um blak þá voru Smáþjóðaleikarnir á Kýpur um daginn og kvennalandsliðið stóð sig rosalega vel og lenntu í 3.sæti, reyndar líka karla liðið og er það besti árángur liðsins í hvað 10 eða 12 ár minnir mig. Þær millilenntu svo hér í bakarleiðinni. Ég tók þær í smá verslunarleiðangur (H&M) og svo ætluðum við að rölta eitthvað en þá kom bara hellirigning og þá meina ég líka HELLI rigning þannig að við hlupum inn á næsta kaffihús og fengum okkur franskar.... og það ekkert lítið af frönskum. Svo skemmtilega vildi til að á torginu við hliðin á okkur var búið að setja upp strandblaksvelli og eftir franskarnar kíktum við aðeins á það en sáum reyndar bara seinustu stigin í úrslitaleik karla. Stelpurnar (aðallega ein samt) vildu síðan endilega fara einn rúnt í rauða hverfið. Þar sem það var sunnudagur þegar þær komu bjóst ég ekki við að sjá margar kjellur í gluggunum en við sáum þó nokkuð margar. Við þurftum samt að labba slatta til að finna þær loksins og þegar við loksins fundum þær öskraði ein af hópnum því henni brá svo.... hahah algjör snilld. Eftir að við komum út úr rauða hverfinu spurði ég þær svo hvernig þeim hafði fundist og þá sagði sú sem hafði verið sem mest spennt fyrir að sjá þetta ,,Mér er bara illt í hjartanu eftir þetta ".... hahaha frekar fyndið. Dálítið pirrandi samt að ég missti af Lilju og Laufey því þær voru í öðru flugi en hinar, og síðan missti ég líka af Fríðu og Jónu því þær fóru beint til Austuríkis í try out .... frekar cool það.


Við Leslie erum að fara að flytja í næstu viku. Fyrir um þremur vikum var okkur sagt að það væri rosalega flott íbúð laus sem væri tilbúin strax. Við vorum rosalega spennt að sjá hana. Þegar inn í húsið var komið voru tvær dauðar mýs í stigaganginum. Þegar inn í íbúðina sjálfa var svo komið voru engin gólf...bara steypa og einhverjir ógeðslegir tréplankar. Við spurðum hvar gólfið væri og þá höfðu fyrri eigendur eða leigendur tekið það með sér. Það er víst bara voða venjulegt. En ekki nóg með það heldur lyktaði allt af fúa og veggfóðrin á veggjunum voru úldin og öll að rifna af. Síðan voru smá svalir sem voru fullar af dúfnaskít og einhverju ógeði. Við sögðum nei takk og löbbuðum út. Síðan á seinasta þriðjudag held ég að það hafi verið var okkur bent á nýja íbúð til að skoða. Hún er í æðislegu hverfi og fyrir neðan gluggan er einn af stærri mörkuðum í Amsterdam. Við vorum í smá vafa um hvort það væri æskilegt þar sem þeir byrja að setja upp klukkan 7, sex daga vikunnar og það skapar yfirleitt frekar mikinn hávaða. En sem betur fer voru gluggarnir mjög vel þéttir þannig að við heyrðum voða lítið. Íbúðin sjálf var æðisleg. Aðeins minni en sú sem við erum í núna, en allt glænýtt. Það var allt rifið út og þegar við skoðuðum hana var ennþá verið að vinna í henni, ekki einu sinni gólf, heldur bara steypa, en það átti að leggja parket. ......... var reyndar að fá frekar heimskulegar fréttir frá Leslie sem var að hringja núna og sagði að eigandinn neitaði að borga fyrir gólfin. Þessir hollendingar sko... en við ætlum að berjast fyrir því að lögð veri gólf því þeir skulda okkur það... af hverju? Löng saga.  Reyndar eitt frekar sorglegt varðandi þessa íbúð og það er að það er enginn ofn :( Það er líka voða venjulegt hérna í Hollandi......skil ekki svona fólk sko. Þannig að næstu viku ætlum við að elda alla uppáhalds ofnréttina okkar. Byrjuðum í gærkvöldi á chicken in a bag sem ég á eftir að sakna skuggalega. Síðan þurfum við að gera Lasagne, Shepherds Pie og Steak Casserole ... á eftir að sakna þessara rétta rosalega mikið. En hei svona er lífið bara.

 

Í dag eru bara 11 dagar í að stelpurnar komi og ég get ekki beðið :) Verðum reyndar nýflutt og allt í rústi trúlega en það verður bara að hafa það :) Svo eftir 13 daga verður haldið til Belgíu á rock werchter !!!! Jibbí cóla ! Get ekki beðið :) 


Fékk frekar góðar fréttir um daginn að Alice in Chains (ein af mínum uppáhalds hljómsveitum) væri að koma til Amsterdam í ágúst. Mín var ekki lengi að kaupa sér miða. Get vel trúað því að fólk hafa haldið að ég væri eitthvað veik á geði þegar ég var að hjóla heim eftir að hafa fengið miðana í hendurnar. Var að reyna að hemja brosið og á köflum skellihló ég bara því ég gat ekki hamið mig....haha. Hlakka svo til að ég get ekki beðið. 


Ég er búin að kaupa miða heim í sumar, en ég lendi á klakanum 20.júli. Ekkert planað ennþá. Bendir samt allt til þess að ég verði að reyna að finna mér vinnu, því ég þarf einhvernveginn að redda næstum 2000 evrum fyrir fyrstu helgina í október því þá þarf ég að klára að borga skólagjöldin. Fæ sem betur fer heilan mánuð frí í enda ágúst til enda september og verð þá að reyna að finna mér vinnu hér. Annars væri mjög næs að geta chillað eitthvað líka þegar maður kemur heim :)


Sorry bara en nenni ekki að henda myndum inn í dag en lofa að láta myndir inn eftir að við verðum flutt svo þið getið séð fínu íbúðina okkar : ) rétt svo vona bara að það verði gólf....


Over and out !   

trallalaSunna Ţrastardóttir

Sæl verið þið

 

Orðið ansi langt síðan ég hef bloggað.... hef enga afsökun, bara samblanda af leti og viðburðarleysi (eða þið vitið skortur á viðburðaríkum dögum, er ekki viss um að viðburðarleysi sé orð). Plús það að stór hluti af seinasta máuði fór í að gera verkefni. Það er alltaf verkefna törn á svona 3ja mánaða fresti og í staðin fyrir að vinna alltaf jafnt og þétt þá er maður að gera þetta tveimur vikum fyrir skil.. alltaf sama sagan. Annars er það að segja um skólann að það gengur bara vel eins best og ég veit. Það voru tvö verkefni sem við skiluðum fyrir viku eða tveimur sem giltu hvort 50%. Fyrra verkefnið var ritgerð um 3 listamenn frá þremur mismunandi tímabilum. Segja frá verkum þeirra og alls konar svoleiðis. Ég náttúrulega elska að skrifa ritgerðir þannig að þetta var rosa skemmtilegt. Ritgerðin mín var um Beethoven, Verdi og Bob Dylan og það sem ég lagði aðallega áherslu á var af hverju þeir nutu eins mikillar velgengi og þeir gerðu og gera enn. Hitt verkefnið var svo re-interpretation á einhverju lagi, kvikmynd eða eitthvað svoleiðis. Ég valdi mér að gera re-interpretation af laginu Yoga með Björk. Ég breytti því úr semi electroniscu trip-hop lagi í mjög accoustiska og rólega gerð með klassískum gítar og þverflautu. Það var ógeðslega gaman að komast í stúdíó aftur og fá að leika sér aðeins. Leslie hjálpaði mér líka helling og.. já ekkert meira um það að segja nema bara ógeðslega skemmtilegt verkefni J Svo þurtfum við að vera með kynningu á verkefnunum og það var frekar skrítið að láta part af bekknum hlusta á lag sem maður hefur gert sjálfur og er að syngja og eitthvað... Vandræðalegt :) En lagið fékk held ég bara ágætis undirtektir. Flottasta lagið að mínu mati var samt lagið sem Hugo gerði en það var singer-songwriter útgáfa af Guns of Brixton með the Clash, fáránlega flott hjá stubbnum :) Í dag byrjaði svo þriðji áfanginn gengur út á business, marketing og legal issues þegar kemur að skemmtanageiranum.


Photobucket

Ég í SSL stúdíóinu hress að fara að syngja með te í hönd :)
 

            Með náminu þurfum við líka að taka 100 tíma í internship. Ég og nokkrir aðrir krakkar úr bekknum fengum email þar sem okkur var boðið internshið vegna góðrar frammistöðu í skólanum. Þetta er frekar stórt verkefni sem Red Bull, skólinn minn og einhver fleiri fyrirtæki eru að vinna að saman sem kallast Rooms of Red Bull. Fyrir verefnið þurftu þeir 3 til að vinna í stúdíói og 3 til að vera coordinators. Ég sótti um seinni stöðuna þar sem consollinn átti að vera digital og ég er meira svona analog stelpa..haha. Þetta verkefni lýsir sér þannig að Red Bull keypti (eða leigði) er ekki viss hús í Rauða hverfinu og breyttu í svona.. tjahh hvað á að kalla það... afþreyingar húsnæði..Í þessu húsi eru semsagt herbergi fyrir fyrirlestra, útvarpsstúdíó þar sem útvarpsþættir verða gerðir og upptökustúdíó. Skólinn minn fékk semsagt pláss til að setja upp stúdíó þar sem ýmsir listamenn geta komið og tekið upp tónlist. Mér leist nú ekkert á blikuna þegar ég kom þarna fyrst... það var búið að rífa alla veggo niður og allt átti að byggja upp á nýtt og greinilegt að það yrði ekki tilbúið á réttum tíma. En þetta reddaðist allt og lítur frekar flott út núna. Fengum helling af flottum varningi lánað þannig að þetta lýtur frekar professional út. Okkar starf sem coordinators er að vera þarna nokkra daga í viku og skrá niður hvað er að gerast í stúdíóinu, vísa fólki á réttann fyrirlestur og svo í lok dags að blogga um daginn. Þetta skýrist allt þegar nær dregur. 

            Blakið er búið í bili. Það munaði einu stigi að við hefðum komist upp um deild sem er frekar svekkjandi, en svona er þetta bara. Við stefnum svo á að reyna að æfa alltaf strandblak einu sinni í viku ef veður leyfir. Síðan eru líka alltaf strandblaksmót um hverja helgi í sumar á mismunandi ströndum hérna í Hollandi sem verður án efe geggjað :) Í gær eftir seinustu æfinguna var svo fundur með stjórnendum hjá félaginu og var rætt hvernig okkur hafi fundist tímabilið. Síðan erum við allar spurðar hvort við viljum halda áfram að vera í liðinu eða fá tækifæri til að fara í hærra eða lægra lið. Allir sögðust vilja vera í sama liði, en ég sagðist mundi vilja fara í hærra lið ef tækifæri gæfist, en samt halda áfram að æfa með mínu liði því þær eru allar svo frábærar stelpur. Síðan kemur það bara í ljós um miðjann júní í hvaða liði maður lendir. Ég er núna í 11. Liðinu hjá félaginu og ég sagðist vera tilbúin að fara hærra en þá í minnsta kosti 6. Liðið því að er ekki svo mikill munur á neðri liðunum. Ég sagði að ef ég ætlaði að eiga einhvern séns í liðið mitt heima yrði ég að fá aðeins meira challange ... stelpurnar í liðinu mínu skildu það alveg og hafa oft rætt það við mig þannig að : No hard feelings þar á bæ :)


Photobucket

 Partur af liðinu mínu, efri röð frá vinstri : Judith, Miriam, Armanda, Mandy og þjálfarinn okkar Francesco. Neðri röð frá vinstri : Wybke, SunSun, Leontien og Christel.

            En þá að veðri. Veðrið í apríl var yndi. Veðrið í maí er ekki búið að vera neitt til að hrópa húrra fyrir en það er eitthvað að batna, t.d. frábært veður í dag. Rétt rúmur mánuður í Rock Werchter. Þegar við ætluðum loksins að kaupa okkur miða var orðið uppselt !!!! Ég tók á mig sökina því ég sagði stelpunum að við þurftum ekkert að vera að flýta því mig minnti að ég hefði keypt miða með stuttum fyrirvara í fyrra. Málið var að combi miðarnir em gildu á alla daga hátíðarinnar voru uppseldir en það voru ennþá til miðar á staka daga. Ég hringdi meira að segja í miðasöluna því ég trúði þessu ekki en þær sögðu mér að það væri allt uppselt. Við gáfum samt ekki upp vonina og ég athugaði oft á dag hvort eitthvað hefði gerst. Eftir miklar pælingar um hvað skildi gera (því stelpurnar voru búnar að kaupa miða hingað) og á hvaða daga við ættum að fara vorum við Magga eitthvað að spjalla á msn. Fyrir tilviljun tékkar hún á miðasölunni og allt í einu var búið að opna fyrir sölu. Ég get svo svarið fyrir það að ég varð svo ánægð að ég hljóp nokkra hringi hérna öskrandi. Við vorum ekki að lengi að grípa miða fyrir okkur og Sigrúnu. Daginn eftir var svo aftur orðið uppselt...HAHAHAHAHA !!!! Yndislegt :)

            Seinasta föstudag kom Sandra svo í heimsókn í þriðja skiptið og kom með Sigurjóni frænda sínum. Þau gistu tvær nætur og fóru svo til Parísar og Brussel og koma svo aftur næstu helgi og ætla að gista tvær nætur áður en þau fljúga heim. Rosa gaman að fá þau....ekki bara af því að þau eru svo frábær heldur líka af því þau komu með snakk og nammi og appelsín.....hehe. Þau vildu endilega fara eitthvað fínt út að borða fyrsta kvöldið og Leslie vissi um einn ítalskann stað.  Þar sem hann hafði farið þangað nokkrum sinnum áður vorum við ekkert að stressa okkur á að kíkja á kort áður en við fórum út. Svo löbbuðum við fram og til baka í örugglega 30-40 mínútur að leita að staðnum. Loksins fundum við hann en þá var LOKAÐ !!! What ! ? Þá hafði orðið einhver vatnsleki eða eitthvað og staðnum var lokað þetta kvöld...þvílík óheppni. En við Leslie gerum slatta af því að fara út að borða þannig að við vissum um einn góðann Indónesískan stað skammt frá og kvöldinu var bjargað. Eftir matinn var farið í einn kokteil og svo bara heim í ból bjarnar, því daginn eftir var EUROVISION !!!

            Við ákváðaum að elda heima næsta kvöld og drífa okkur svo í partý hjá Hugo. Við vorum ekkert að stressa okkur á tíma og fengum okkur smá powernap síðdegis og byrjuðum að elda um 7..eða það var allavegana planið, hef ekki hugmynd hvenær við byrjuðum að elda því enginn var að kíkja á klukkuna. Síðan byrjum við að borða í rólegheitunum og einhver kíkir á klukkuna á þá var hún 20 mínútur í 9... Við skófluðum dýrindis thai kjúklinga rétti í fésið á okkur og pöntuðum leigubíl, á þeim tímapunkti var ég ekki einu sinni búin að mála mig. Leigubíllinn kom um korter yfir 9. Leslie skildi ekki stressið í okkur (þessir útlendingar sko), ég var búin að tékka og vissi að Jóhanna ætti að vera 7unda í röðinni og mér datt í hug að hún myndi ekki byrja fyrr en um hálf tíu. Við sögðum leigubílstjóranum að keyra eins hratt og hann gæti því við værum að missa af voðalega mikilvægum viðburði....haha. Loksins komumst við til Hugo og hlupum inn og vorum komin um 30 sekúndum áður en Jóhanna byrjaði.....hahaha, algjör snilld :) Við skemmtum okkur konunlega í partýinu og planið var svo að fara að djamma eftir á en við vorum svo lengi að drulla okkur út að við Leslie nenntum ekki en Sandra og Sigurjón skelltu sér á Leidseplein. Við Leslie löbbuðum hins vegar heim í hellidempu og þrumuveðri. Mér finnst samt alltaf svo gaman að vera í útlenskri rigningu og þrumuveðri.


Photobucket

Svona leit ég út eftir labbið heim :)
 

            Varðandi Eurovision. Ég var mikill áhugamaður hérna í denn, jafnvel pro (vafasamur titill það). Ég tók keppnirnar upp á spólu og líka á kasettu til að geta hlustað í bílnum. Svo horfði maður á þetta aftur og aftur og aftur. Þegar maður óx úr grasi áttaði maður sig á að við myndum aldrei vinna með þáverandi stigasýstemi. En í ár lifnaði aftur yfir minni þegar við komumst úr undanriðlinum og ég er ekki frá því að maður hafi fengið brot af gamla fýlingnum :) Ég er ekki frá því að þetta hafi verið besti flutningur Íslendinga í eurovision hingað til. Allavega heyrði ég ekki eina einustu feilnótu. Frábært hjá henni alveg hreint. Skil samt ekki alveg hæpið með þennan Nossara... ágætis lag og gaurinn náttúrulega algjör dúllubossi en tjahh maður skal ekki segja.

            Fyrir utan þetta er voða lítið meira í fréttum nema kannski það að ég er að safna toppi sem ég efast ekki um að þykir fréttnæmt.

            Annars var hjólinu hans Leslie stolið í annað skiptið um daginn hérna fyrir utan húsið meðan mínu hefur aldrei verið stolið..... múahahaha Lúhúser... nei djók.

            Amsterdam er svona borg þar sem maður er alltaf að uppgötva eitthvað nýtt, nýjann veitingastað, nýja götu, nýtt kaffihús sem er alveg frábært. Við Leslie uppgötvuðum einmitt nýja götu þegar við vorum að labba á milli staða kvöldið þegar veitingahúsinu var lokað. Svo í gærkvöldi fórum við á einn stað í þessari sömu götu og fengum okkur pizzu og jidúdda hvað hún var GÓÐ!!!! Besta pizza sem ég hef fengið. Eftir pizzuna fengum við okkur svo ís í þessari sömu götu og jidúdda !!!! Besti ís sem ég hef fengið í Amsterdam... fæ alveg bara vatn í munninn og tár í augun við tilhugsunina.

            Það sem tekur næst við er bara að hlakka til að fá stelpurnar og fara á Werchter. Hlakka svo til að fá þær og mér er alltaf að detta eitthvað nýtt í hug til að gera með þeim þegar þær koma :) Allavega pottþétt að fá okkur ís og pizzu :) 

 

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra og segi bara adios... sakna ykkar allra voða mikið og hlakka til að sjá ykkur í sumar þegar ég kem heim :) 

Ætla að henda inn nokkrum random myndum hérna í lokinn    -     enjoy               

           
Photobucket 

           Ristað brauð.... why ?  Það er líka alveg til venjulegt en hringbrauð er best


Photobucket 

Fór um daginn og keypti 5 kílóa poka af kattarmat. SVo rakst hann í hjólið mitt og rifnaði og allt fór um allt. Það voru kannski 500gr. eftir af pokanum            


Photobucket 

 Stundum verður maður latur og þá er gott að eiga kærasta sem nennir að reiða mann á hjólinu út um allt :)

Photobucket

Fyrir nokkrum vikum var parísarhjól á Dam torginu og við skelltum okkur í það eitt kvöldið 


Photobucket 

Loksins kom svo grillveður. Keyptum grill og grilluðum ógeðslega góða hamborgara og kjúklinga kebab og svo banana með súkkulaði í eftirrétt :)


Photobucket 

Þjóðhátíðardagur Hollendinga var svo í enga apríl og við kíktum í bæinn. Á leiðinni heim losnaði keðjan á hjólinu mínu og ég leit svona út eftir að hafa sett hana aftur á :)

Lifið heil 

BloggsSunna Ţrastardóttir

 

Ég ætlaði mér að reyna að sofa almenilega út í dag  þar sem ég er búin að vera drulluþreytt seinustu daga, en vegna ýmissa hluta vaknaði ég snemma og gat ekki sofnað aftur. Það er sossum vitleysa að segja ýmissa atburða þar sem það var bara einn tiltekinn atburður.... og hér kemur hann :


Leslie er búinn að vera með hjól í láni hjá vini okkar í nokkrar vikur því hans var ónýtt. Það var ekki gott hjól og hann skilaði því eftir að vera búinn að laga það því það sprakk á því á nokkrum stöðum. Hann ákvað þá loksins að kaupa sér hjól, ekki nýtt heldur second hand á 150 evrur. Fyrsta daginn sem hann hjólar á því í vinnuna er eitthvað að aftur dekkinu og hann fer með það í viðgerð. Leslie þolir ekki að vera ekki með hjól, því það er svo mikil frelsissvipting. Mér er nett sama, því ef ég þarf að komast leiða minna tek ég bara tram eða strætó, en hann þolir það ekki því maður getur ekki treyst á það til að koma sér á leiðarenda á réttum tíma. Hann náði semsagt í hjólið sitt aftur í gær úr viðgerð og var allt í fína.  ....Anyways.... Í gær var ég a keppa og var komin heim um hálft tólf á hjólinu mínu og læt það í hjólarekkann hérna fyrir utan. Þetta er ekki stór rekki, kannski 6 pláss eða eitthvað. Í morgun  þegar Leslie var að hafa sig til í vinnuna vakna ég rétt svo en rotast svo aftur þegar hann fer út. Nokkrum mínútum seinna kemur hann inn og segir ,, Má ég fá hjólið þitt, það er búið að stela mínu".... ég bara VOTT ertu ekki að grínast...hvaða helvítis vesen. Ég stend upp til að leita að lyklonum af mínu hjóli og finn þá hvergi.... hann er að verða of seinn í vinnuna þannig að ég skýt því í loftið að Það sé hugsanlegt að ég hafi gleymt því í lásnum á hjólinu í gærkvöldi. Hann kíkir út og kemur aftur inn ekki hress og segir ,, Þannig að mitt hjól sem var kyrfilega læst í rekkanum er stolið, en þitt hjól sem var í sama rekka með lykil í lásnum var ekki stolið", hann var sko ekki sáttur. En í alvöru.... hversu mikil íronía er þetta. Ömó.


Ég er búin að skila inn öllum verkefnunum fyrir fyrsta áfangann og núna eru ekki verkefna skil fyrr en í maí :) Hélt ég hefði skítfallið á fyrsta verkefninu, en fékk 8. Já en 8 er ekki það sama og átta skal ég segja ykkur. Einkunnarkerfið hérna er frekar einkennilegt. Einkunnir eru gefðar frá 1-20 og er 17-20 fall og 1 þ.a.l besta einkunn. Gaur sem fékk 15 sagði að það hafi jafngilt 7,2 á venjulegum skala, þannig að ég býst við að 8 sé eitthvað kringum 8..þarf að reyna að komast að þessu. En ég náði allavega. Ég er ekki búin að fá einkunnir úr hinum tveimur en hef ekki trú á ég falli í þeim.... vona allavega ekki. Já GUÐ !!! Talandi um það ! Seinasta verkefnið sem ég skilaði inn var fyrirlestur. Ég var búinn að búa til þennan líka fína fyrirlestur um fjárframlög og styrki til útrásar íslenskrar tónlistar. Á seinni fyrirlestrardeginum var ég búin að kjarka mig upp og biðja um að fá að vera fyrst. Ég mætti snemma í skólan með Leslie klukkan 10, en tíminn minn byrjaði ekki fyrr en 11. Ég gerði einhverjar smávæginlegar breytingar með ég beið. Síðan kemur kennarinn inn á skrifstofu til Leslie og spyr hvort ég sé tilbúin að tengja tölvuna við skjávarpann. Ég ýtti á SAVE og fór svo inn í stofu og tengdi tölvuna og fór svo aftur út því tíminn átti ekki að byrja strax. Síðan þegar tíminn byrjar og ég búin að setja mig í stellingar og kíki á tölvuna þá er allt bara HORFIÐ !!!! Ha ? Þetta átti að vera 15 mínútna fyrirlestur og þetta voru svona sirka 16 slides og ekki bara einhverjar drasl slides heldur ýkt flottar með myndum og mússík. Ég biðst afsökunar og spyr hvort ég megi vera seinust að flytja minn. Ekki málið. Ég get svo svarið fyrir það að mig langaði að grenja.... en nei það sem ég gerði var að setjast í sætið mitt og búa til allan fyrirlesturinn upp á nýtt. Sem betur fer hafði ég lesið þetta yfir í nokkur skipti þannig að ég mundi þetta eiginlega utan af. En ég semsagt var tilbúin eftir klukktíma og meira að segja komin með betri fyrirlestur fyrir vikið. Ég held mér hafi gengið alveg ágætlega, allavega ekki fall ;) Og ég frétti að kennarinn minn hefði keypt sér disk með Sigur Rós eftir á....hehe :)


En að öðru. Ég var semsagt að keppa í gær með mínu liði dames 11. Hef verið að keppa líka svolítið með dames 12 þegar þær þurfa. En allavega Við ætluðum nokkrar að hittast til að hjóla saman í húsið því engin af okkur hafði komið þangað áður. Við ætluðum að hittast á einum stað klukkan 1910, leikurinn átti að byrja klukkan 20 og við erum vanar að næta hálftíma fyrr. Ég vissi að það tæki mig ekki langann tíma að komast þangað þannig að ég tók því bara rólega. Klukkan hálf 7 tek ég eftir að síminn minn er batteríslaus og sting honum í samband ( án þess þó að kveikja á honum ,... átti eftir að koma í bakið á mér seinna). Ég semsagt hjóla af stað og er kominn á staðinn akkúrat 1910, var meira að segja risa klukka á horninu sem við ætluðum að hittast á. Ég bíð og bíð... og bíð og bíð og ákveð svo að kveikja á símanum í tilefni dagsins. Klukkan orðin 1920 og ég ákvað að tékka á símanum... þá voru 3 missed calls öll frá einni í blakinu, þar sem ég átti ekki inneign gat ég ekkji hringt til baka.  Og einhvernveginn hafði titringurinn farið framhjá mér. Allavega þá stend ég þarna ennþá rennandi blaut....helvítis rigning alltaf hreint, og held á símanum til að vera tilbúin ef hún skildi hringja aftur.... en neinei það gerist ekki þannig að ég labba inn á eitthvað tyrkneskt veitigahús og spyr hvort þeir séu með síma. Gaurinn var ekki alveg að skilja mig og sagði ,, Nei við seljum ekki síma...en má bjóða þér pizzu ", ,,Nei takk, ég þarf bara að fá að hringja". Loksins fattar hann hvað ég er að meina og ætlar að ná í síma en þá akkúrat hringir Miriam. Hún sagði mér að þær hefðu hringt og hringt rétt eftir hálf 7 því þær ætluðu á bíl út af rigningunni. En auðvitað var slökkt á mínum síma. Hún sagði að þetta væri rétt hjá Olympisk stadium... en mér heyrðist hún segja að þetta væri í Olympisk Statium. Ég spyr eitthvað fólk hvar það sé og finn það vandræðalaust. Risastórt stadium, notað undir ólympíuleikana sem voru haldnir hér 1926 minnir mig að þær hafi sagt. Allaveganna þá legg ég hjólinu mínu og labba í nokkra hringi og finn hvergi inngang né fólk ... Klukkan var orðin 20 mín í 8 og ég finn eitthvað fólk og fæ að hringja hjá þeim en þá svarar Miriam ekki. Hún hringdi svo stuttu seinna og spurði hvar ég væri:,, Nei þú þarft að fara þangað og þangað og gera þetta og þetta á þessari götu". Þetta átti víst að vera bein leið og á sömu götu og ég hafði hjólað frá horninu okkar. Ég hjóla aðeins til baka og hélt ég væri komin á sömu götu sem hét Amstelweensveg og kíki á skilti en þá stendur bara ekki rassgat Amstelweensveg heldur Stadionplein. Nokkrum mínútum seinna þegar ég var búin að hjóla í nokkra hringi hringja þær aftur og reyna að segja mér... en ég bara botna ekki neitt í neinu og er orðin illa stressuð og blaut. Sé síðan eitthvað fólk og spyr til vegar. Loksins finn ég þetta hús og legg hjólinu mínu, kíki á klukku á húsinu og hún segir 1957. Hleyp inn kíki inn í sal og sé að þær eru að hita upp með uppgjöfum. Fer úr blautu fötunum og í búninginn og inn í sal. Þær áttu bara að vera fimm en voru sex sem betur fer. Og svo bara inn á völl án upphitunar. Ekki það sniðugasta en ég var búin að hjóla svo hratt og í marga hringi að þetta reddaðist. Var líka í uppspili þannig að öxlin var í lagi. Við unnum svo fyrstu tvær hrinurnar og töpuðum þriðju. Í fjórðu hrinu vorum við undir 24-19 og þá fór ég í uppgjörf. Skoraði eitt stig og hitt liðið tók leikhlé. Ég sagði við stelpurnar að ég væri ekki rassgat í stuði í 5. hrinu þannig að við yrðum að vinna þessa hrinu. Ég held áfram í uppgjöf og skora nokkur stig. Held að leikurinn hafi endað 28-26 eða 29-27....fyrir okkur :)!!!!!! Sem betur fer, var svo ánægð að það hálf hefði verið nóg. Sýnir bara að leikurinn er ekki búinn fyrr en hann er búinn :) 


Eftir leikinn fengum við okkur bjór á barnum eins og venjulega. Við erum með afleysingaþjálfara þar sem okkar er eitthvað upptekinn. Hann segir við mig ,, Nú ertu íslens, ég hélt þú værir rússnesk"..... haha vott ? ,,Ég hélt að Íslendingar litu út eins og eskimóar".... hahaha , heimsku Frakkar !

En meira um blak þá erum við í 2. sæti í deildinni okkar. Á laugardaginn er ég svo að fara að keppa á kvöld/nætur móti frá 19 - 01. Hlakka geðveikt til.. á víst að vera eitthvað gull þema og stelpurnar eru búnar að redda einhverju gulli.


Annars fékk ég sendingu frá minni yndislegu móður um daginn. Égvar búin að byðja hana um smá þorramat og ég fékk rúgbrauð, flatkökur, hangikjötsálegg, hákarl, sviðasultu og lyfrapylsu.... namminamm :) Við Leslie vorum svo með smá þorrablót og ég lét hann smakka allar kræsingarnar. Ég tók hann upp á vídjó....hahahaha það var ótrúlega fyndið. Honum fannst slátrið allt í lagi, en sviðasultan og hákarlinn ógeð :) Hann var samt sáttur með mömmu því hún sendi líka þristapoka og hann elskar Þrista. 


Magga og Sigrún eru búnar að kaupa sér flugmiða og ætla að koma í sumar 30.júní. Við ætlum svo að fara saman á Rock Werchter í Belgíu 2.-5. júlí og sjá helling af góðum böndum s.s. Metallica, Coldplay, Emiliönu Torrini, Prodigy, Oasis, The Killers, ELBOW !!!!, Kings of Leon, Franz Ferdinand, Limp Bizkit ( hahahah) svo einhver séu nefnd. Ella ætlar að reyna að koma líka og vona ég að hún komist :)

Annars ætla ég líka að reyna að koma heim í sumar, verð eiginlega að koma því frænka mín er að fara að eignast barn og það verður fyrsta langömmubarnið hennar ömmu .... hlakka svo til :)


Annars er dagsplanið að reyna að skúra gólfin og kannski læra smávegis...en ég segi bara lifið heil :)


btw. Sorry hvað þetta var langt blogg

Annáll 2008Sunna Ţrastardóttir

 

 

Sæl verið þið og til hamingju með nýja árið. 


Ég hafði það rosalega gott yfir hátíðirnar og vona að þrátt fyrir kreppu og volæði hafið þið gert það líka :)


Ég hef nú bloggað í þó nokkuð mörg ár en ekki man ég eftir að hafa gert svona annál yfir liðið ár. En hef ákveðið að gera það yfir 2008 svo gjörið svo vel. Ég nenni ekki að gera það í mánaðarröð þar sem ég man ekkert hvenær hlutirnir gerðust...bara svona sirkabát.
 

1. Var heima um jólin 2007 og flaug svo aftur út í kringum 5 janúar trúlega. Það var mjög erfitt að kveðja alla, en leið og maður var kominn aftur út til Amsterdam var bara hamingja sem tók við. Fallegt veður og bjart og allt yndislegt :)


2. Mig minnir að það hafi verið í enda janúar sem Sandra kom í heimsókn með Guðnýu vinkonu sinni . Það var ógeðslega gaman að fá þær og það eru trúlega djömmin með þeim sem standa upp úr djammlega séð hjá mér. 


3.  Ekkert mikið annað sem stendur upp úr að mig minnir þessa fyrstu mánuði ársins. Maí var klárlega besti mánuður ársins hérna í Amsterdam veðurlega séð. Það var bara sól allan mánuðinn....en síðan sást varla til sólar restina af sumrinu.


4. Sumarið var æðislegt. Fékk tvær vikur i sumarfrí og ákvað að fara ekki heim því þá var planið að flytja heim aftur í september og fannst þess vegna ekki taka því. 

Sigrún kom í byrjun júlí og fórum við á tónlistarhátíð í Belgíu sem heitir Rock Werchter og var bara alltof flott hátíð. Planið er að fara aftur á þá hátíð í sumar en þá koma Elín og Magga með líka vonandi :) Á hátíðinni sáum við Sigrún helling af flottum böndum og það sem stendur svona helst upp úr eru : Radiohead, Lenny Kravitz, Editors, King of Leon, Chemical brothers, Sigurós og The Kooks.  

Photobucket

Fengum ekkert alltof skemmtilegt veður samt. Rigndi frekar mikið...en sást þó líka eitthvað til sólarinnar.

wechter 2

Vöknuðum svo við þetta að mig minnir seinustu nóttina að einhver hennti tré á tjaldið okkar...fokkfeis !


5. Hin tónlistarhátíðin sem ég fór á var Lowlands sem var í Hollandi, en ég fór þangað til að vinna...réttara sagt að taka upp bönd....múahaha. Nei ekki alveg en samt í þykjó. Það var semsagt þannig að við vorum nokkur úr skólanum beðin að vinna á þessari hátíð. Við vorum 3 valin úr skólanum og fengum við öll okkar svið til að vinna á. Þetta er rosa stór hátíð og eitthvað í kringum 8 svið að mig minnir. Ég var beðin að vera á stærsta sviðinu. Bak við hvert svið var svona stór trukkur og inn í honum mixer og allar græjur til að taka upp. Okkar hlutverk var að sitja við hliðin á gaurnum sem var að taka upp og ýta og rec fyrir hvert lag og svo á stop eftir hvert lag. Síðan þurftum við að skrifa niður hversu langt hvert lag var og gefa því svo einkunn frá 1-5 eftir gæðum og flutningi. Ástæðan fyrir einkunnargjöfinni var sú að þau lög sem við gáfum hæstu einkunnirnar voru leyfðar til spilunar í útvarpi eða sjónvarpi. Þetta var sossum ekkert merkilegt starf en þetta var bara ógeðslega skemmtileg lífsreynsla og gaman. Stærstu böndin sem voru á sviðinu mínu voru : Anouk, dEus, Editors, Franz Ferdinand, The Hives, Kooks, NERD, Nightwish, The presidents of the USA og Underworld. 

Photobucket

Þetta er semsagt trukkurinn sem ég vann í og fallega SSL deskið 


6. Í sumar kom líka Valdís í heimsókn og var hún eigi einsömul...þ.e.a.s. hún kom með þrjár vinkonur sínar með sér og voru þær sem vor lengst í 10 daga. Það var ýkt gaman að fá þær. Mamma kom líka loksins í heimsókn í sumar stuttu á eftir Valdísi og það var líka mjög gaman:)

Photobucket

Ég og Valdís hin fagra :)

Photobucket

Ég og múttan mín :) 


7.  Ég tók upp lagið Sofðu unga ástin mín sem ég var mjög ánægð með. Ég spilaði á gítar, söng það og spilaði líka á flautu. Ég er mjög ánægð með útsetninguna á því en ég studdist nú við einhverjar kórraddanir en þar sem ég mundi þær ekki alveg bullaði ég bara sums staðar. Síðan bætti ég þverflautunni inn í sem ég var ánægð með og gaf svo final útgáfuna til valinna fjölskyldumeðlima...þ.e.a.s. mömmu, ömmu og pabba. Hefði sossum getað fengið einhvern sem kann að spila á gítar eða syngja en langaði bara rosa til að gera þetta sjálf og er bara þokkalega ánægð með þetta. Hefðu getað verið mixað aðeins betur trúlega. ...laga þetta kannski einhvertímann seinna, hver veit ?


8. Náði mér í diplomu í audio engineering sem var nokkuð gott að fá í hendurnar. Get ekki sagt að ég sé orðin einhver snillingur, en kann þó eitthvað...og mun meira en ég kunni áður en ég byrjaði sem var náttúrulega ekki neitt. Fékk kannski ekki bestu einkunnina í heiminum.... en náði allavega sem er meira en helmingurinn af bekknum gat sagt. 


9. Tók nokkuð stóra ákvörðun í enda september um að fara ekki heim á klakann strax, heldur ákvað ég að vera rúmt ár lengur og taka BA í recording arts. Eftir þá ákvörðunartöku ákváðum við Leslie að byrja að búa saman, og er það í fyrsta skiptið sem ég bý með kærastanum mínum...og gengur bara nokkuð vel ykkur að segja :) Við búum í lítill íbúð í vestur Amsterdam með kettinum Max.


Photobucket

Ég og Leslie á djamminu með Söndru

Photobucket

Út um stofugluggann hjá okkur 


10. Stuttu eftir að ég tók ákvörðunina um að halda áfram kom Sandra frænka aftur í heimsókn í annað skiptið á árinu. Eins og í fyrra skiptið var alveg ótrúlega gaman að fá hana :) Það mættu fleiri taka sér hana til fyrirmyndar og koma í heimsókn til mín á árinu..já ég veit að það er kreppa...en so.

Photobucket

Hún var hér yfir afmælið sitt svo við skelltum okkur út að borða 


11. Ég drullaðist svo loksins til að byrja aftur í blaki eftir rúmt árs hlé. Kannski ekki besta liðið í heiminum en mér er bara nokkuð sama :)


12. 18. desember fór ég svo heim á klakann. Tíminn þar var æði. Ótrúlega gaman að hitta alla vinina sem ég hafði ekki séð í ár. Sá held ég bara alla sem mig langaði mest að hitta. Hitti náttúrulega alla þessa venjulegu...þið vitið hver þið eruð. Síðan langaði mig rosalega að hitta Lilju því ég náði ekki að hitta hana seinast þegar ég var á landinu, en hitti hana sem betur fer núna þegar ég kíkti á blakæfingu. Fór líka í heimsókn til Andra og Viktors sem ég er ekkert búin að sakna smá mikið síðan þeir fóru frá Amsterdam og var ótrúlega gott að hitta þá og knúsa. Fór í eitt partý til Ásthildar og hitti nokkra blakara þar sem gaman að var að hitta...var reyndar dálítið fúl að hitta eki Írisi. Sama kvöld vorum við í bænum og þá hitti ég Írisi sem var ýkt cool. Fannst samt dálítið leiðinlegt að hitta ekki Þórdísi og litlu stelpuna þeirra Gulla, Friðmey Heklu. En þegar ég var á flugvellinum hitti ég Þórdís og með Friðmey framan á sér, sem var frábær endir á góðri ferð. Rosa ánægð með það :)

Photobucket

Ég og mínar bestu á gamlárskvöld hjá Sigrúnu


 13. Mamma varð fimmtug 21.des og bauð í kvennapartý sem var æðislegt. Jól og áramót voru svo frekar hefðbundin með mikið af mat og góðum og rakettum. Æðislegt jólafrí bara í alla staði og segi ég bara takk fyrir mig :) 

Photobucket
 

Þar með er flest allt komið sem vert er að segja frá í svona annál. 


Það sem gerðist líka á árinu var að ég kynntist rosa mikið af nýjum hljómsveitum í gegnum Leslie, sem ég vil endilega að þið tékkið á ef þið eruð fyrir flotta tónlist sem er kannski aðeins rólegri kanntinum 


- Elbow

- Zero 7

- Cinematic orchestra

- Calexico

- Morcheeba


En svona tónlistarlega séð vil ég koma með nokkra punkta um persónulegt álit mitt á árinu sem er að líða. Og svona svona svo þið vitið það þá er þetta ekki allt saman nýtt sem gerðist á árinu heldur bara eitthvað sem ég hef uppgötvað :


Plata ársins   :   In rainbows - Radiohead


Band ársins   :   Elbow


Live band ársins   :   Elbow og Editors. Sá bæði böndin tvisvar og allt sem ég sá var flaweless.

Lag ársins   :   Þau eru svo mörg...einhver á Radiohead disknum og líka Elbow lög og Cinematic Orchestra en akkúrat í dag ætla ég að segja Man next door með Massive attack ( sem passar ekki alveg því það er eitthvað í kringum 10 ára segir Leslie, en mér er alveg sama því það er awesome !!!)
 

Tónleikar ársins   :   Fyrir utan tónlistarhátíðirnar fór ég baa á þrenna tónleika að mig minnir sem voru tvennir Elbow tónleikar og svo Emiliana Torrini. Emiliana var rosa góð en ég held ég verði að segja fyrstu Elbow tónleikarnir í Amsterdam í sumar....þeir voru bara hreint út sagt ruglaðir. 


En semsagt hreint út sagti frábært ár að flestu leiti.


Svo segi ég bara lifið heil dúllurassarnir mínir :) 


 

 

HćhóSunna Ţrastardóttir

Héðan er allt gott að frétta eins og vanalega. Er orðið skít fáránlega kalt og kuldinn smýgur inn í beinin svo manni langar að grenja. Já ég er alveg á því að 1 gráða hér er ekki það sama og 1 gráða heima því það er meiri raki hér og því virðist kaldara. Annars er ég enginn veðurspekúlant...En það voru 0 gráður hér í dag og ég hélt ég myndi æla úr kulda. Ég man ekki eftir mörgum snjókomum hér í fyrra, venjulega kemur haglél í svona 2 mín og svo allt búið. En um daginn þá snjóaði jólasnjó allan daginn. Það var rosa kósý. Daginn eftir var samt allt farið sem sökkaði. 

Byrjaði í skólanum í seinustu viku. Fór í einn tíma um origins of entertainment industry sem var mjög fínn tími. Fór svo aftur í dag í tíma um researching techniques, sem var ágætt. Kennarinn fór bara rosalega mikið í pirrurnar á mér. Hann er þýskur og talar ensku með yndislega skemmtilegum þýskum hreim. Ekkert af því, en eftir 90% af hverri einustu setningu sagði hann alltaf hmm og beygði sig í hnjánum. Hvað er málið með það maður bara spyr sig. Er bara í skólanum tvisvar í viku í þrjá tíma í senn. Það þýðir ekkert nema bara að maður þarf að vera með rosalegan sjálfsaga og halda sér við efnið og læra alla daga og vera skipulagður. Er frekar stressuð fyrir því en það þýðir ekkert annað en að standa sig. 

Blakið er alltaf jafn gaman. Er núna búin að fara á þrjár æfingar og keppa einn leik. Fyrstu tvær æfingarnar voru ekkert alltof góðar þar sem þjálfarinn var ekki við. Hitti svo þjálfarann í fyrsta skiptið þegar við fórum að keppa og hann er rosa fínn, veit alveg hvað hann syngur. Nú fyrir utan að hann lét mig vera á bekknum fyrstu hrinuna....hvað er málið með það...haha. Ég var ekki sátt. En leikurinn gekk semsagt rosa vel og við unnum hann 4-0. Blak spekúlantar hugsa væntanlega núna ,,Hvað er málið með það”. Já ég bara veit það ekki.  Fyrir hvern leik er mest hægt að fá 5 stig. Þannig að ef annað liðið er yfir 3-0 er spiluð önnur hrina til að gefa hinu liðinu séns á einu eða tveimur stigum. Ef annað liðið er komið 4-0 yfir er ekki spiluð fimmta hrina, heldur fær liðið bara 5 stig. Þetta er frekar einkennilegt en bara skemmtilegt finnst mér. Eins og áður hefur komið fram er ég bara að æfa einu sinni í viku sem er ekki nógu gott en það er yfirleitt leikur einu sinni í viku þannig að maður fær smá hreyfingu. Eftir æfinguna í gær tók þjálfarinn minn mig á tal og sagði mér að ég ætti ekki heima í þessu liði og ætti frekar að spila með liði á hærra leveli. Hann sagði að stelpurnar væru rosa ánægðar með að hafa mig og hann líka, en myndi skilja mig ef að ég vildi færa mig upp um level. Hann sagði að þetta væri algjörlega undir mér komið. Ég pældi aðeins í þessu þegar ég kom heim í gær og ég held að ég verði bara áfram með þessu liði. Er að fýla stelpurnar og þjálfarann. Væri auðvitað skemmtilegra að æfa oftar í viku, en þá gefst bara meiri tími til að huga að skólanum. Ég er 10 mín að hjóla á æfingu sem er cool. Plús það að í endann á æfingunni í gær vorum við að spila smá æfingaleik við stelpurnar sem eru 6 levelum yfir okkur og þær voru bara ekkert mikið betri. Þannig að ég sé meiri pros en cons í þessu dæmi. Og þá er það ákveðið :)

Var stoppuð af löggunni um daginn. Við Leslie vorum að hjóla heim og ég var ekki með ljós framan á. Það voru tvær löggur sem stóðu í skugga og ein af þeim stoppaði mig. Ég fékk 20 evrur í sekt. Löggan sem stoppaði mig var kvenkyns. Á meðan hún var að skrifa eitthvað niður þá tekur Leslie eftir því að löggan sem var með henni sem var karlkyns stoppaði konu sem var ekki heldur með ljós framan á. Hún segir eitthvað við lögguna og löggan leyfir henni að fara. Hvaða bull. Leslie var ekki sáttur og vildi fá skýringar, ég varð frekar stressuð og bað hann að róa sig, nennti ekki að lenda í einhverju veseni, ekki það að hann hafi eitthvað verið að æsa sig samt. En æjji mér finnst þetta stupid...þriggja ára krakkar eru hjólandi um allt með engann hjálm, svo fæ ég sekt fyrir að vera ekki með ljós.....pffff.

Um daginn vorum við (eða Lebbi) að setja upp ljós í stofunni sem hefur lengi setið á hakanum en loksins ákváðum við að drullast til að setja þau upp. Við förum í rafmagnsskápinn og tökum rafmagnið af. Sem betur fer var Lebbinn með eitthvað sérstakt rafmagnsskúfjárn sem lýsir rauðu ljósi þegar það er ennþá rafmagn. Og viti menn, haldið þið ekki að skrúfjárnið hafi byrjað að blikka. Hann var ekki sáttur. Manninum líkar ekki vel við hollendinga fyrir en eftir þetta varð hann svo hneykslaður og sagði að þetta væri svo ólöglegt. Ég skildi ekki alveg hvernig þetta á að geta gerst. Það var ljós í stofunni en þegar við tókum rafmagnið af þar slökknaði á ljósunum þannig að maður hefði haldið að það væri ekki rafmagn þar. En guði sé lof að hann var með svona spes skrúfjárn því annars hefi getað farið illa. 

Ætlaði að kaupa mér flug heim um daginn. Fór á heimabankann minn eitt kvöldið og millifærði frá debetinu yfir á kreditið. Fór svo á Icelandair og ætlaði að kaupa miðann á 75 þús. Var búin að tékka á express en það hefði bara verið svipað plús það að ég hefði þurft að borga flug frá Amsterdam til London. Allavega daginn eftir fékk ég mail um að ekki hefði fengist heimild (útaf því að millifærslan var ekki komin í gegn) og að ég þyrfti að kaupa miðann aftur. Ætla að nefna það að um nóttina dreymdi mig að miðinn hefði lækkað. Allavega ég fór þá aftur á Icelandair og þá kostaði miðinn rétt yfir 60 þús....haha. Var mjög sátt. 

 

Hef ekki mikið meira að segja nema bara lifið heil og hlakka til að sjá ykkur eftir 24 daga :)

Elbow tónleikar og blakćfingSunna Ţrastardóttir

sæl verið þið

Við Leslie fórum á Elbow síðasta sunnudag í Haarlem og þeir voru æði. Lebba fannst þeir betri en þegar við sáum þá fyrst en mér fannst þeir betri í fyrsta skiptið. Þó svo að Patronaat þar sem þeir voru að spila í þetta skiptið sé sérstaklega byggt fyrir mússík fannst mér þeir sounda betur í Paradiso sem er gömul kirkja. En hvað sem því líður voru þeir rosalega góðir og er ég alveg á því að þeir séu eitt besta live band í heiminum í dag...og ég er búin að sjá mörg stór bönd síðasta árið....hmmm talandi um það þá eru Editors líka ruglaðir live, og þá meina ég ruglaðir. Þau lög sem þeir fluttu best að mínu mati voru leaders of the free world og grounds for divorce...bara svona til að nefna einhver, og enn og aftur bið ég ykkur að tékka á þessu bandi og segja mér hvað ykkur finnst..ef þið fýlið ekki bandið í fyrstu tilraun prófið þið þá aftur. Ég fýlaði þá alls ekki fyrst.  


Varúð. Hér fyrir neðan er efni sem enginn á eftir að hafa áhuga á nema blakfólk

En mál málanna þá skellti ég mér á blakæfingu á mánudaginn. Var ruglað stressuð eins og vanalega þegar ég þarf að fara ein inn í hóp af fólki. Plús það að ég hef ekki umgengist stelpur eitthvað að viti í meira en ár og einhver sagði mér að hollenskar stelpur væru ekki þær skemmtilegustu. En ég skal sko segja ykkur það að þær voru rosa fínar. Það var reyndar enginn þjálfari, því hann var sjálfur að keppa einhversstaðar þannig að æfingin var ekkert sérstaklega góð. En varðandi þetta lið þá eru þær ekkert voðalega góðar...ætla maður geti ekki líkt þeim við annar deildar öldungalið, en mér er nett sama....langar bara að vera í smá bolta. Ég bjóst sossum ekki við að þetta væri eitthvað svaka lið því þær heita Ladies 11..sem er semsagt næst lélegasta liðið hjá félaginu. Ástæða þess að ég var sett í þetta lið er sú að þau hleypa ekki fólki inn í lið nema það sé pláss fyrir það...og þetta var eina plássið. En eins og ég segi þá voru þetta rosa fínar stelpur, flestar á aldur við mig og já...orðið langt síðan maður hefur verið með þeim bestu í liðinu :) Þær æfa bara einu sinni í viku sem sökkar, en það verður bara að hafa það. Ég get ekki beðið þangað til næst :) Þetta var of gaman....blak er bara of skemmtilegt. Einhver sagði að það að spila blak væri eins og að hjóla á hjóli. Það er að ef þú kannt það einu sinni og tekur svo pásu ertu ekki svo lengi að komast inn í það aftur..verður kannski svolítið ryðgaður fyrst, en svo kemur þetta. Svoleiðis var þetta með mig í gær. Við vorum að spila tvær og tvær saman og fingurslagið mitt var ógeð...var að reyna að gera það geðeikt mjút og hljóðlátt en það var bara ógeð. En 20 mínútum seinna var það orðið flawless og eins og ég hafði spilað upp í áratugi. Það sama má segja um baggerinn ... hann fór ekki alltaf á réttu staðina en alltaf í áttina, en 20 mín seinna var allt orðið gott. Hvað varðar smass, hef ég alltaf tekið langann tíma í á læra á nýja uppspilara og var ar engin undartekning á í þetta skiptið. Manneskjan spilaði svo hátt upp að það hálfa væri nóg. Ég hef alltaf verið meira fyrir lága og hraða bolta...en neinei. Var ekkert að biðja hana að spila lægra svona á fyrstu æfingunni. Sama hvað ég reyndi að bíða og bíða þá var ég alltaf of fljót en gat alltaf reddað mér einhvernveginn. Það fyndna er að þær voru alveg gáttaðar á mér. Fannst ég ógeðslega góð..hihi. Dæmi um það þá var ég að fara að smassa einn bolta og hitti hann engann veginn og ég hitti hann á handlegginn. Boltinn fór samt í gólfið og þá sagði ein við mig...This ball was amazing....hahaha fannst það ýkt fyndið. Hvað uppgjafir varðar þá fór ein í netið af 20 og flestar svifu. Getur samt vel verið að þær hafi allar verið út þar sem ekki var mikið pláss fyrir aftan völlinn, og ég hef aldrei verið mjög góð að hitta inn á völlinn ef ég fæ ekki mína 5 metra eða svo fyrir aftann. 
Hvað varðar leik skipulag þá hef ég aldrei séð eins skrítið fyrirkomulag. Þær sögðu mér að þeir væru vanar að spila með tvo uppspilara og mér leist vel á það þar sem mér finnst gaman í svoleiðis. EN neinei..þetta var nú meira bullið. Ég skildi þetta ekki alveg en svona var þetta. Uppspilarinn sem er í aftari línu á að vera rétt fyrir aftan 3ja metra línuna fyrir miðju og tekur alla stuttu boltana, plús ef að uppspilarinn í fremri röð nær honum ekki kallar hún over og þá á aftari uppspilari að spila honum upp. Æjji ég skildi þetta ekki alveg, en mér fannst þetta hálf stupid. Plús það að stundum spilaði hún upp úr stöðu 4...hlakka til að læra betur á þetta kerfi. Reyndar sögðu þær að þjálfarinn þeirra væri að reyna að kemma þeim nýtt leikfyrirkomulag og ég vona að það sé venjulegt.
Annars er ekkert meira um þessa æfingu nema bara að ég er að drepas í skrokknum, með marbletti og er með sprungnar háræðar á framhandleggjum. Hef aldrei fengið svoleiðis áður. Er öll út í svona milljón litlum rauðum doppum, og er nokkuð viss um að það séu sprungnar háræðar. Eftir æfinguna spurðu þær mig hvort ég ætlaði að koma með þeim í bjór. Ég bara ha ? Þá er bar á efri hæðinni ....haha algjör snilld. 

Við Leslie vorum að elda áðan chicken in a bag, sem er ómótstæðilega góður réttur. Það er sossum ekki frásögu færandi nema hvað að þegar við vorum að undirbúa þá tekur Lebbinn fram hrísgrjónapoka og vill endilega fara í blak með hann. Eg hugsa mér að þetta geti ekki endað vel. Við blökum smá en þá ákvað fyrrverandi fótboltastrákurinn að sparka laust í hann og pokinn springur og hrísgrjón út um allt....jebb, góð saga.

Annars segi ég bara over and out og bið ykkur endilega að commenta, er orðin pirruð á að vera með 20 heimsóknir á dag og 4 commenta. Annars þakka ég ykkur fyrir sem eruð dugleg að commenta.
Bæjjó spæjjó. 
 





 

HellúSunna Ţrastardóttir

Hæhæ

Héðan er allt gott að frétta sem og fyrri daginn. Þið ykkar sem eruð að velta skólamálunum mínum fyrir ykkur hef ég þetta að segja. Til þess að komast inn í skólann þurfti ég að taka staðlað enskupróf sem heitir TOEFL ( test of english as a foreign language). Af því að ég tók það svo seint þá verða niðurstöðurnar ekki tilbúnar áður en skólinn byrjar. Ég talaði við skólastjórann og hann sagði að það væri ekkert mál að ég myndi bara byrja og skila inn niðurstöðum úr prófinu nokkrum dögum seinna. Þannig að í rauninni er ég komin inn og ef ég næ ekki þessu prófi þá er hægt að taka það aftur. En er ekki alveg viss hversu mikið ég er tilbúin að borga næstum 30þús kall aftur til að taka það í annað skiptið. Varðandi þetta próf þá gekk það alveg ágætlega. Minnti dálítið á samræmdu prófin....langt og leiðinlegt. Fyrst voru textar sem maður átti að svara spurningum úr og ég held mér hafi gengið verst í því....rugl erfiðir textar sumir. Síðan átti maður að hlusta og svara spurningum, svo átti maður að tala og síðan að skrifa ritgerðir. Ég labbaði inn í húsið klukkan 1030 og var komin út klukkan 1530..ógeðslega langt drasl. Ekki nóg með það, þegar ég var að fara að byrja prófið sér gaurinn sem er að vísa mér til sætis passann minn, og segir við mig : Ahh Icelandic. Ég brosti mínu blíðasta og kinkaði kolli. Hann hallaði sér uppað mér og segir við mig : Not very popular these days - og labbaði svo í burtu. Góð aðferð til að láta manni líða vel....fáviti. 
     Sandra frænka kom um daginn og var frá föstudegi til þriðjudags. Hún var hérna yfir afmælið sitt þannig að Leslie bakaði köku fyrir hana sem var ljúffeng sem og fyrri daginn...engar myndir samt í þetta skiptið. Við brölluðum ýmislegt, þó aðallega versla og drekka bjór. Ég bauð henni svo út að borða á steikhús á afmælinu hennar og við fengum okkur ljúffengar steikur og meððí. Rosa gaman að fá hana :)
Ég er búin að reyna að vera dugleg að skokka ...maður verður náttúrulega að koma sér í kjólinn fyrir jólinn. Er með ágætis plan. Byrjaði á 10 mín og skokkaði það 5 daga. Svo 15 mín og aftur í 5 daga svo 20 mín aftur í 5 daga og var í dag að skokka í 25 mín í annað skiptið. Það er kannski ekki mikið miðað við suma, en ég er ánægð með mig að vera allavega að reyna. Það er nefniega ekkert gott fyrir mallann að búa með englendingi verð ég að segja.Egg og bacon samlokur í morgunmat svona ca. 3svar í viku...og þið sem þekkið mig vitið að ef einhver er að steikja bacon þá segi ég ekki : ,,Nei takk, ég ætla bara að fá mér múslí"...neibb það er bara ekki ég. 
Fann loksins blaklið um daginn og sendi þeim meil. Hafði ekkert fengið til baka í tvær vikur fyrr en í gær....Og þið getið rétt svo ýmindað ykkur hversu glöð ég var ...fékk alveg tár í augun og alles. Konan spurði mig í hvaða deild ég hefði spilað í og hvaða stöðu. Ég montaði mig náttúrulega og sagðist hafa verið í besta liðinu á Íslandi. Sagði henni svo að ég hefði spilað allar stöður nema miðju...sem er svona eiginlega rétt. Sagði henni náttúrulega að ég hefði mest spilað kannt og uppspil. En einnig hef ég spilað díjó og svo prófað að vera libero á æfingum með landsliðinu. Hún sagðist hafa nokkrar lausar stöður í nokkrum liðum þannig að ég bíð bara spennt eftir að sjá hvað ég fæ. Er nett sama ...langar bara að spila blak !!! Bennti henni reyndar líka á að standardinn heima væri ekki alveg sá sami og hér...þar sem Hollendingar eru hæsta þjóð í heimi og plús það að blak var fundið upp hér..minnir mig að ég hafi lesið einhversstaðar. 
Ég er nokkuð viss um að ég verði að fá mér einhverja svolitla vinnu til þess að ná endum saman, og plús það að ég er á móti því að vera fátækur námsmaður....sorry bara ég sætti mig bara ekki við svoleiðis. Fékk dálítið tryllta hugmynd hérna áðan varðandi vinnu en ætla ekki að tjá mig um það fyrr en ég er búin að ræða við einn aðila. Og nei fyrir ykkur sem eruð að velta því fyrir ykkur þá er ég ekki að tala um að fá mér vinnu í rauða hverfinu....þær fá hvort eð er ekki meira en 50 evrur fyrir dráttinn sem mér þykir ekki mikið. Ekki það að ég hafi ekki alveg velt þessum möguleika fyrir mér....nei djók...ok sorry þetta var ekki fyndið. 
Helgarplanið er svo hljóðandi. Afmæli hjá Marek í kvöld. Skokk og chill á morgun. Og svo á sunnudaginn er dagur daganna. Þá ætlum við að skella okkur til Harlem sem er bær rétt utan við Amsterdam ( þar sem ströndin er ) og fara að sjá Elbow í annað skipti. Hann bauð mér einmitt á tónleika með þeim á fyrsta deitinu okkar....svo rómó - jidúddamía :) 
Fórum um daginn að versla í matinn í einhverri ítalskri búð. Já drengurinn er svolítið snobbaður þegar kemur að mat. Ég kannski skil það varðandi ávexti og grænmeti en hann getur ekki einu sinni keypt pasta né hrísgrjón í venjulegum búðum. Neinei ég ætla sossum ekkert að dissa þetta neitt....erum alltaf með rosa ferskan mat hér á borðum. En allavega þá vorum við að kaupa pasta í þessari búð. Hann bendir mér svo á kexpakka og segir að þetta kex sé ógeðslega gott. Mér finnst það ekkert líta eitthvað alltof vel út að utan því það virðist vera frekar dökkt súkkulaði og ég er ekki mikið fyrir svoleiðis, en hann segir að ég eigi eftir að elska það. Allavega þá keypti hann það og þegar við komum heim hellti ég mér mjólk í glas og fékk mér kexköku..............................................................og.............GVUÐ........................MINN................
ALMÁTTUGUR......þvílík himnasæla. Að utan er þetta bara eins og svona stökk súkkulaðikaka en innihaldið er hreint út sagt gvuðdómlegt. Við erum að ræða að innihaldið er svona eins og súkkulaði mús. Þetta var alveg rossalegt. Er jafnvel að hugsa um að henda einum svona pakka í alla jólapakkana ef einhverjir verða....þið fáið allavega kex frá mér :)

Annars hef ég voða lítið annað að segja en bara að ég hlakka rosalega mikið til að koma heim um jólin og hitta ykkur öll og knúsa :) 

En þangað til næst lifið heil og gangið hægt um gleðinnar dyr, og reynið að fara ekki á hausinn í kreppunni
 

SćlinúSunna Ţrastardóttir

Hæhæ

Héðan er allt gott að frétta sem og fyrri daginn. Hef ekkert að gera þannig að ég ákvað að henda inn einni stuttri færslu. Hef ekkert heyrt frá skólnum....en er alveg frekar bjartsýn á að ég komist inn. Hérna er búið að rigna ógeðslega mikið og farið að kólna all verulega. Ofnarnir hérna í íbúðinni virka ekki þannig að ég er búin að ganga um í ullarsokkum, tveimur hettupeysum með hetturnar á mér eins og einhver útigangskona, ekki það að ég hafi eitthvað á móti svoleiðis konum. En það kemur víst einhver kall að gera við ofnana í vikunni :) Bíð spennt. Fékk nett sjokk áðan. Þannig er mál með vexti að kötturinn hans Lebba hann Max er rosalega stór. Við erum með smá svalir og á milli okkar blokkar og næstu er bara svona stórt svæði sem er þak á húsi fyrir neðan. Þannig að við getum labbað út af svölnum og þá erum við á þaki....æjji veit ekki alveg hvernig ég á að útskýra. Á þessu þaki eru oft kettir sem eiga heima í blokkinni. Við leyfum Max stundum að fara út en pössum alltaf að hann fari ekki af svölunum, því Leslie vill meina að hann verði brjálaður og eigi eftir að ráðast á kettina, því þegar hann hefur fengið að fara út á svalir er hann alltaf að þefa og veit að einhver annar köttur hefur verið á svölunum okkar. Ég vorkenni honum ýkt mikið því hann stendur oft við svaladyrnar og mjálmar og ég segi alltaf við Lebba að hleypa honum út og að kannski verði hann ekkert brjálaður, af því að þessi köttur er svo mikið yndi að ég get ekki ýmindað mér hann eitthvað brjálaðann. Síðan áðan var leslie í vinnunni og max stendur við svaladyrnar og ég hleypi honum út en fer með honum til að passa að hann hlaupi ekki af svölunum, hef oft gert það áður og hann hlýðir mér alltaf þegar ég banna honum að fara af svölunum. En áðan þá hljóp hann bara beint út af svölunum og ég á táslunum hoppa yfir handriðið og öskra á hann að koma aftur. Þá fann hann einhverja lykt og hljóp af stað, loksins náði ég taki á honum og hann hvæsti og hvæst og var me klærnar út þannig að ég get alveg trúað því að hann sé vandræðagemsi. En ef hann kemst í slag þá á hann eftir að stúta hinum köttunum, því þeir ru pinku pons miðað við hann. Síðan þegar við komum inn skammaði ég hann og nú erum við í fýlu við hvort annað. 
Ég er ekki búin að fá mér vinnu, nenni ekki að vera að fá mér vinnu ef ég kemst svo ekki inn. En fer nú örugglega bráðum að fá svar og dríf mig þá í þetta. Emiliana Torrini er að spila hérna á sunnudaginn og við ætlum að skella okkur...ýkt gaman að fá íslenskann artist hingað :)
Við bökuðum white chocolate ginger cheesecake sem heppnaðist rosa vel og var suddalega góð..namminamm :) Ég held að ég sé hreinlega búin að finna blaklið sem ég ætla að hafa samband við. Þetta er víst stærsta félagið í Amsterdam og staðsett rúman kílómetra frá þar sem ég bý...haha algjör snilld. Þau eru með helling af mismunandi stigum þannig að ég get fundið eitthvað við mitt hæfi. Er ekki búin að senda email á þau, ætla að bíða með það þangað til ég er búin að kaupa mér almennilega skó. Máli er bara að það eru bara tvær æfingar á viku, en held það verð allt í lagi, þrái bara að komast aftur í smá contact við bolta :) Dagana sem ég verð ekki á æfingum get ég bara farið að skokka, þar sem það eru tveir almenningsgarðar hérna nokkrum mínútum frá. 

Það virðist einhver misskilnigur vera í gangi um að ég sé að fela hann Lebba fyrir ykkur. Það er alls ekki málið og hérna fáið þið myndir sem við tókum um daginn í smá flippi. Og svona til að koma því að var það hans hugmynd....mér finnst paramyndir hallærislegt fyrirbæri og vil aldrei vera þekkt fyrir að eiga hugmyndina af þessari klisju :) Kannski er ég bara eitthvað að linast að hafa samþykkt þessa vitleysu. En gjörið svo vel :

Photobucket

Svona erum við mikið krútt

Photobucket

Jebb smá myndaflipp í gangi


Photobucket

HAHAHA

Photobucket

Jebba


Photobucket

Hérna er svo ostakakan sem við bökuðum Leit ekkert alltof vel út fyrst

Photobucket

Þegar við vorum búin að skrapa súkkulaðispænir á toppinn leit hún aðeins betur, en hún var ýkt góð :)


Photobucket

Meira myndaflipp


Photobucket

En svona án djóks þá lítur hann svona út fyrir ykkur sem eruð forvitin :)


Photobucket

Það tók okkur án gríns svona 30 tilraunir að fá þokkalegar myndir...hann er ekki besta módelið


Photobucket

Ein af mér. Ýkt hörð að vaska upp :)


Photobucket

Annars hef ég ekkert meira að segja annað en bara lifið heil

varúđ ! Löng fćrslaSunna Ţrastardóttir

sæl verið þið, 

Héðan er allt þetta fínasta að frétta. Náði semsagt skólanum með 75 í meðaleinkunn, sem er ekkert til að hrópa húrra fyrir en ég get bara verið sátt held ég. Útskriftin var frekar einkennileg þar sem við vorum bara 4. Ég, Rui, Chris og Bjarki því flestir aðrir féllu, nema Íslendingarnir sem náðu allir en voru bara farnir heim á klakann. Eftir það var smá djamm sem var ennþá skrítnara þar sem við vorum bara 3, því Rui fór heim að pakka þar sem hann þurfti að ná flugi til Portúgals næsta dag.



Photobucket

Chris, Bjarki og ég.

Eitt kvöldið fyrir nokkrum vikum spurði Leslie mig af hverju ég ætlaði ekki að taka BA. Ég vissi ekkert hverju ég átti að svara og panntaði tíma hjá gaur í skólanum sem sér um BA gráðuna. Var reyndar búin að fara á BA kynningu hjá honum áður en leist ekkert á það. Aðal ástæðan fyrir því að mér leist ekkert á það var að hann sagði að viðþyrftum að halda fyrirlestra og eitthvað og ég bara sjitt, ekki séns að ég þori því. Algjör aumingi, auðvitað gerir svoleiðis nokkuð manni bara gott. Þannig að ég fór á fund með honum og hann var rosa næs. Var mjög hreinskilinn og sagði að fyrstu mánuðirnir yrðu pain, því þeir færu bara í researching techniques. Síðan spurði hann mig hvað ég myndi annars fara að læra ef ekki BA í þessu. Ég sagði honum að það yrði sagnfræði, stjórnmálafræði, sálfræði eða lögfræði. Hann varð mjög sáttur og sagði að allir þessir þættir kæmu mikið við sögu í námsefninu, sérstaklega þó saga og lögfræði. Eftir fundinn fór ég heim og pældi í þessu í nokkra daga og tók síðan ákvörðun að skella mér á þetta. Byrjaði að skrifa ritgerð sem ég þurfti að skila inn með umsókninni. Ég skrifaði um lagið Face of Melinda með Opeth og sagði frá uppbyggingu lagsins, mix tækni og fleiru. Þetta átti bara að vera 1000 orð, en mín fór í tæp 1800 sem skiptir ekki miklu máli. Núna er ég semsagt bara að bíða eftir svari hort ég komist inn eður ei. Það sem gæti hindrað mig í að komast inn var það að ég var með meðaleinkunn 75 en þarf að vera með 78 til að komast inn, en hann sagði að ég gæti alveg sloppið þar sem ég er ekki svo langt undir. Er meira að segja byrjuð að leita að blakliðum því ekki séns að ég ætli að vera annað ár án blaks. Þetta BA nám tekur 15 mánuði, ár í skólanum og svo 3 mánuðir sem lærlingur einhversstaðar og til að klára BA ritgerðina. Námið byrjar ekki fyrr en 17 nóvember þannig að ég mundi klára námið í febrúar 2010....sjæse. 
     Við Leslie erum búin að ákveða að búa saman ef ég kemst inn. Er núna búin að búa hérna í mánuð og sambúðin gengur bara rosa vel. Það skrítna er að ég hef ekki oft fengið ofnæmi þó að kötturinn Max búi hérna. Nokkuð gott. Hann er búinn að kenna mér að elda helling og ég er orðin nokkuð góð, sérstaklega að elda Thai sem við gerum mikið af, alltso Leslie ekki Max.      
     Við fundum músa holuna þaðan sem mýsnar hafa verið að koma og Leslie og gaurinn sem býr fyrir ofan drápu 3 músabörn um daginn. Ég varð brjáluð en Leslie sagði að gaurinn fyrir ofan hafi gert það, sem hann heldur fram að sé hommi, og ég spurði hann léstu virkilega hommann snúa músabörnin úr hálsliðnum....er ekki alveg viss um hverju ég á að trúa. Einn daginn sat ég svo inn í stofu og heyrði eitthvað hljóð koma úr ofninum inn í eldhúsi, það eru semsagt mýs búnar að vera inn í ofninum okkar. Ekki samt á sama stað þar sem maturinn er, heldur á milli einhversstaðar. Síðan þegar Leslie kom heim sagði ég honum þetta og hann kveikti bara á gasofninum og þá hljóð hún út og niðrí holu sem við fundum á bakvið. Hann fyllti upp í holuna með korktappa, en daginn eftir var hún búin að naga sig út. Síðan einn daginn þá vorum við eitthvað inn í stofu og síðan rekst Leslie allt í einu á dauða mús á gólfinu. Þá hafði Max drepið hana um nóttina og bara skilið hana eftir þarna.


Photobucket
Pinku ponsu lítil. Ullabjakk 

 Nokkrum dögum seinna kemur hann með aðra mús inn eina nóttina sem hann hafði drepið. Hann lagði hana á gólfið og var eitthvað að ýta á hana því hann var að reyna að lífga hana við, því hann étur þær ekki heldur leikur sér bara við þær. En hún var dauð litla skinnið og henni var hennt í ruslið.
Við höfum ekki rekist á mýs núna í viku eða svo því við fylltum vel upp í holuna.
Leslie var í fríi um helgina þannig að við gerðum okkur glaðan dag í gær og fórum til Haarlem sem er borg rétt utan við Amsterdam. Það var fernt sem hann sagði að við þyrftum að gera. 1. Fara á markaðinn og fá okkur djúpsteiktann fisk sem við gerðum, sem var rosa góður. 2. Kaupa nýristaðar Macademian hnetur sem voru ótrúlega góðar..og þá meina ég rosa góðar. 3. Smakka ísinn í gömlu ísbúðinni. Og það var ruglað. Þetta var ísbúð sem er búin að vera starfandi frá 1949 og maður gat horft á þau búa til ísinn. ég fékk mér tvær kúlur, After eight og banana og þvílík himnasæla...og þa meina ég himnesk sæla. 4. Fara á ströndina...jebb það er sko strönd í Hollandi og það var magnað. Ætluðum ekkert að sóla okkur heldur bara chilla. Yndislegt. Reyndar aðalástæðan fyrir því að við fórum til Haarlem var að kaupa miða á Elbow sem eru að koma aftur til Hollands og spila í Haarlem núna. Hlakka ýkt til að sjá þá aftur, en við sáum þá seinast í enda júní. Núna eru þeir nýbúnir að vinna Mercury verðlaunin sem þeir áttu fyllilega skilið fyrir nýjustu plötu þeirra The seldom seen kid. Eftir að þeir unnu verðlaunin jókst plötusala þeirra um heil 688% á tæpri viku sem er magnað. Við erum semsagt að fara að sjá þá aftur og núna í húsi sem er hannað fyrir tónlist en ekki í gamalli kirkju eins og síðast á Paradiso. Síðan er Emiliana Torrini að koma í október og ætla ég að draga hann með mér að sjá hana. 
    Planið í dag er að chilla, búa til ostaköku og fara svo í stúdío að mixa eitthvap efni sem hann tók upp í sumar. Annars vona ég bara að allir séu við hesta heilsu og allt sé gott að frétta af ykkur lömbin mín. 
 
Photobucket

Ýkt flott strönd


Photobucket

Sandur og sól



Photobucket

Leslie fékk smá sand hárið


Photobucket

Ég

Photobucket

Sólin að setjast

Skólinn búinnSunna Ţrastardóttir

Jæja jæja

Lokaprófið var semsagt seinasta laugardag og gekk alveg skelfilega svo ekki sé annað sagt. Við tókum tvö 150 spurninga krossapróf, hvert tveir tímar á lengd. Það gekk öllum frekar illa eða sæmilega. Eftir prófið fórum við öll á einhvern pöbb í nágreninu með kennaranum okkar og drukkum bjór í boði skólans :) Það er víst einhver hefð:) Eftir það var farið heim og tekið smá til og farið í sparigallann því við Atli héldum bekkjarpartý, sem var líka afmælispartý fyrir Hugo gamla sem er orðinn 30 kjellinn. Kennarinn okkar kom líka og kom hann með margaritu blöndu sem fór vel í mannskapinn og allir voru frekar mikið fullir þetta kvöld, nema Sunna litla sem var stillt og prúð :) Teitið kláraðist um 0230 og þá fórum við Leslie heim til hans og ég hjólaði á hjólinu hans sem var mjög fyndið, ekki það auðveldasta að hjóla á of stóru hjóli og vera aðins í því :) Varðandi það hversu fullt fólk var þá fékk ég skemmtilegt símtal daginn eftir frá ónefndum aðila X sem hljómaði svona :
        X: Hæhæ ég er með eina spurningu
Sunna: Amm
        X: Ég er dálítið forvitinn............uhhmmm......veist þú nokkuð hvernig ég komst heim í nótt ?

hahahahaha. Þetta gerist þegar fólk er bara búið að sofa í 4-5 tíma og er nýbúið að taka 4 tíma próf

Daginn eftir þurftum við Atli að taka íbúðina okkar í gegn því við þurftum að skila henni daginn eftir. Daginn eftir það  hjálpaði ég svo Leslie að flytja. Hann var nýbúinn að koma sér fyrir í hinni íbúðinni og bara búinn að búa þar í tæpa tvo mánuði, þá koma einhverjir verkamenn og söguðu í burtu einhverja svona stuðnings stöpla sem eiga víst að halda húsinu uppi. Hann fékk svo símtal að hann yrði að fara út á næstu vikum því húsið væri ekki nógu stöðugt til að búa í..hahahaha. Hverskonar hálvita fávitar eru hérna í Amsterdam. 
       Daginn eftir flutningana átti Leslie svo afmæli og ég fór með hann út að borða sem var mjög næs. Næstu dagar voru bara nýttir í langþráðan svefn, og er ég ekki búin að gera mikið seinustu daga annað en að liggja í rúminu og drekka kók og borða snakk og glápa á biómyndir :) Horfði á tvær alveg skelfilegar í gær, Loveguru og Meet Dave....mæli semsagt alls ekki með þeim, en þó var Meet Dave aðeins betri. 
     Fólk hefur mikið verið að spyrja mig hvenær ég kem heim....veit það ekki, Leslie er búinn að bjóða mér að vera eins lengi og ég vil. Á bara eftir að pannta flug og býst við að það verði einhvertímann í kringum 25.sept eða svo. Langar samt ekkert heim frekar en fyrri daginn, ýmislegt sem maður saknar svosem, en það verður meira sem ég á eftir að sakna héðan held ég.....fokk it. Næstu vikur ætla ég að reyna að vera dugleg að skokka og að koma mér í form fyrir blakið....hahaha, hversu oft hafið þið heyrt þennan :) 
     Í nótt vöknuðum við þvílík læti frammi í stofu og allt í einu kemur Max (kötturinn hans Leslie) hlaupandi in alveg brjálaður. Ég kveiki ljósið og sé að hann er að eltast við mús....en hann áði henni ekki og hún er ennþá hérna í húsinu einhversstaðar...hann hlýtur að ná henni einhvertímann í dag :) 
     En varðandi skólann þá er ég ekkert stressuð. Þó að lokaprófið hafi ekki gengið vel, þá gekk allt annað vel og ég vona bara að það bjargi mér, er nokkuð viss :) Er ekki alveg viss um hvenær ég fæ einkunnir, en það verður einhvertímann á næstu vikum.
     Annars segi ég bara over and out í bili og sé ykkur bráðum....eða ekki....... 
Síđa 1 af 6

Teljari

Atburđarteljari

Gagnasafn